27apríl

Finn bloggandann færast yfir enda líður að júrovisjon:)
Á hrikalega erfitt með að bíða eftir þessari dásemdarviku sem júróvikan verður! Aðeins of mikið af leiðinlegum lögum en mikil gleði inn á milli. Er búin að finna Faddy ársins 2008 og gott ef að winnerinn er ekki á hreinu líka;)

Andinn er ekki mættur þó hann sé á leiðinni enda ætlaði ég bara að athuga hvort ég myndi lykilorðið hingað inn...sem ég gerði svo sannarlega ekki þannig að ég er 19 kr. fátækari.

Kem fljótt aftur
...
27. apríl 2008 klukkan 22:13
Arnrún Sveinsdóttir
3 athugasemdir
30júlí

Kveðjustund

Ég hef fengið af því fregnir að rauða Brandagils-bæjarskiltið sé horfið og í staðinn sé komið blátt eins og við aðra bæi. Ég á eftir að sakna þess rauða en Brandagilssagan hefur fengið farsælan endi sem er fyrir öllu.
Mér þykir við hæfi að þessi orð verði þau síðustu sem ég rita á þessa síðu...ja allavega ætla ég í langt blogg-orlof.

Ég bið ykkur vel að lifa lömbin mín og þakka samveruna.
30. júlí 2007 klukkan 14:22
Arnrún Sveinsdóttir
8 athugasemdir
07júlí

07.07.07

Er arfaslakur bloggari enda er heimsóknafjöldi í samræmi við það. Lofa hvorki bót né betrun en það er aldrei að vita hvað gerist engu að síður.
Ég skellti mér í bæinn í gær í fyrsta skipti síðan reykingabannið tók gildi. Gönguferðin í bæinn gekk nánast stórslysalaust fyrir sig en ég gæti auðveldlega legið á sjúkrabeði útlimalaus eða á leið í kistuna. Við ákváðum að best væri að klifra yfir girðinguna á Miklubrautinni...það hafðist en það mátti engu muna ...búin að prófa þetta svo þess gerist ekki þörf oftar.
Er alls ekki mótfallin þessu banni en eftir stutt stopp á öldurhúsum veit ég ekki alveg hvar ég stend. Aðra eins djöfulsins svitafýlu hef ég aldrei á ævinni fundið...mér varð svo flökurt og gat því ekki með nokkru móti verið þarna inni.
Á leiðinni úr bænum, fótgangandi enda stutt í Helguhlíð þá stoppar bíll og bílstjórinn sem var ungur piltur spyr hvort hann eigi að skutla okkur fyrir pening eins og ekkert væri sjálfsagðara. Þessi piltur hefði mátt láta sjá sig fyrr í vetur þegar ég næstum því varð úti við að bíða í þessari ógeðslegu leigubílaröð...sé eftir að hafa ekki fengið númerið hans.

Þangað til næst...
07. júlí 2007 klukkan 23:13
Arnrún Sveinsdóttir
11 athugasemdir
21júní

Sannarlega betra seint en aldrei!

Það er við hæfi að byrja þessa færslu á að bjóða velkomna í heiminn litlu prinsessu Sigrúnar og Hrafns og óska nýbökuðum foreldrum innilega til hamingju með frumburðinn. Þessi nýfædda mús er ástæða þessarar færslu þar sem ég hentist í búð til að finna eitthvað fallegt til að gefa henni Arnrúnu litlu. Hagkaup varð fyrsta og síðasta stopp. Hef vanið mig á að gefa nýfæddum þeirra fyrsta adidasgalla en það er ekki hægt lengur þegar stelpa fæðist þar sem ekkert fæst nema bleikt. Bleikur er ágætis litur svo sem en ég hef vanið mig á að stuðla ekki að því að þær breytist í sykurpúða strax í vöggunni, það sjá aðrir um þaðBrosandi Ég rölti þarna um barnafatadeildina í leit að rauðu eða helst öllu öðru en bleiku. Strákafötin voru blá og stelpufötin ævinlega með bleiku í. Meira að segja ef að peysan/kjóllinn var appelsínugulur tókst þeim að troða bleiku í hann og nóg af honum. Það eina sem ég sá var rándýr rauður og hvítur kjóll, fallegur var hann en kaus að fjárfesta ekki í flík handa Arnrúnu litlu í þessu hugarástandi svo það skal bíða betri tíma.

Það er gott að taka það fram að þetta eru ekki blammeringar til foreldra sem hrífast af bleiku heldur einungis það að ég kýs að kaupa ekki bleikt!


Að öðru. Landsleikur í kvöld þar sem kvennalandsliðið keppir við Serba. Stelpurnar hafa iðulega staðið sig vel og ævinlega betur en strákarnir en þrátt fyrir það hafa þær þurft að berjast fyrir hverju einasta orði, skrifuðu eða töluðu, um þær á öldum ljósvakans. Nú er svo komið að þær hafa aldrei fengið meiri fjölmiðlaumfjöllun sem er vel. Hins vegar fannst mér athyglivert að hlusta á mín skoðun á x-inu áðan þar sem það voru bara karlmenn sem hringdu inn til að fá gefins miða. Ég efast ekki um það að það eru fleiri strákar en stelpur sem hafa gaman af fótbolta en þetta snýst um svo miklu miklu meira en íþróttina. Þetta snýst um jafnrétti og þar finnst mér að konur ættu að standa saman, það drepur engan að horfa á fótboltaleik í 2 tíma í góðu veðri svo ekki sé nú minnst á að það er auðvelt að komast yfir frímiða. En nei enn og aftur eiga aðrir að sjá um að berjast fyrir jafnréttinu fyrir okkur konurnar. Það eiga aðrir að berjast fyrir jafnrétti kynjanna...ríkisstjórnin, forstjórar fyrirtækja og aðrir ráðamenn. Það er vonandi að þeim takist vel upp því við getum lítið treyst á okkur sjálfar, ef einhverri konu dettur í hug að tala fyrir bættari hag er hún ömurlegur feministi og það sem verra er að það eru ekki síður konurnar en karlarnir sem láta það út úr sér.

Kvennadagurinn er nýliðinn og mér finnst tími til kominn að láta verkin tala...landsleikurinn í kvöld snýst um mikið meira en fótbolta, hann snýst um jafnrétti kynjanna þar sem konur ættu að standa með kynsystrum sínum og fjölmenna á völlinn.

Ég ætla á völlinn í kvöld og verð ekki í bleikuGlottandi...Áfram Ísland

21. júní 2007 klukkan 14:00
Arnrún Sveinsdóttir
18 athugasemdir
24maí

Það munar ekki um sumarið sem boðið er upp á!

Hér í Reykjavíkurhreppi er veður vont. Kalt og rok og rýkur upp með éljum þegar líður á kvöldið gæti ég best trúað, svipað og undanfarna daga!! Heppin samt að búa ekki "í grennd" því þar er alltaf rigningGlottandi væri ekki til í rigningu í bland við þennan kokteil enda er ég með þvott á snúrunni.
Á morgun held ég svo á vit ævintýranna með sambýlinu mínu. Ferðinni er heitið til Salou í Spánverjalandi. Þar hef ég heyrt að sé gott að vera og hlakka mikið til að sannreyna þær sögusagnirBrosandi Hef reyndar dvalið þar langtímum undanfarna viku en lítið upplifað sólina þar sem ég hef setið í sófanum og leikið mér á google-earth, líst ljómandi vel á enda hm í næsta bæ sem er örstutt fráSvalur
Er að myndast við að pakka ofan í tösku, á nú engin ógrynni af sumarfatnaði þar sem ég er með "kaupa allt svart-syndrom" en stuttbuxur á ég og það fallegar, enda kenndar við barcelona. ...best að halda pakkinu áfram.

Fleira var það ekki í bili sílin mín, ég bið ykkur vel að lifa og sendi knús út í loftiðBrosandi


24. maí 2007 klukkan 16:21
Arnrún Sveinsdóttir
6 athugasemdir
21maí

Þannig er í pottinn búið!

Nú er ég svo steinhætt að pirra mig yfir því að fá fréttablaðið um helgar. Hætt að óskapast yfir því að blaðburðarfólk kunni ekki að lesa og nenni ekki að vinna vinnuna sína. Sá sem ber út til mín er örugglega magnaður, brosti breitt og fallega þegar hann stormaði að póstkassanum mínum. Og enn breiðar þegar ég afþakkaði blaðið. Hann rétti mér það engu að síður og kvaddi. Hann er útlendingur sem gat með engu móti skilið að ég vildi ekki fá blaðiðBrosandi
Er að spá í að taka bara við því hér eftir með bros á vör...
21. maí 2007 klukkan 16:59
Arnrún Sveinsdóttir
1 athugasemd
18maí

18. maí

Prófin búin, júro búið, kosningar búnar, fyrsti og annar í próflokadjammi eru búnir og ég er almennt bara búin.
Hrikalega mikið af skemmtilegum hlutum búnir að gerast, búin að hlæja mikið, gera mikið grín, drekka mikið og fara á rúntinn í Reykjanesbæ sem var mikil gleði en ástæðuna get ég ómögulega gefið uppGlottandi
Þjáist af aðskilnaðarkvíða...flestir eru nú himinlifandi með próflok en mínar tilfinningar eru blendnar. Skemmti mér konunglega með Öllu og Siggu í Odda enda með svipað svart hjarta og ég...sem boðar ekkert nema gleði.

Vika í spánarferð...það verður ljúft og náttúrulega enn betra að vita af henni Siggu þarna í grendinni...vona innilega að ég komist í eins og einn bjór með henniBrosandi

Fleira var það ekki í bili, vildi bara láta vita að ég er ekki dauð.
Góða helgi sílin mín...
18. maí 2007 klukkan 17:32
Arnrún Sveinsdóttir
4 athugasemdir
12maí

Júrovisjon 2007 - úrslit

1. Bosnía&Herzegovina býður ekki upp á neina gleði. Dautt og leiðinlegt lag sem fær innan við 10 stig...

2. Spánn sendir strákaband til keppni. Sláandi huggulegir piltar allir sem einn með hresst og skemmtilegt lag sem gæti vel náð langt. Ég fer í gott skap þegar þeir segja “come give me your love” og sé allt evrópska kvenkynið kikkna í hnjánum þegar þeir biðja um ást þeirraBrosandi Svo eru þeir voða duglegir að dansa líka...þeir verða flottir piltarnir.

3. Hvíta-Rússland og Koldun. Þessi elska sem burstar tennurnar sínar svo vel. Hann koma sá og sigraði á fimmtudaginn og ég spái honum velgengni í kvöld. Hann verður jafnvel búinn að æfa enska framburðinn betur en dansinn var allavega flawlessGlottandi

4. Írland vill meina að þeir geti ekki stoppað vorið og það er alveg jafn leiðinlegt og það hljómar. Væmið myndband og ég á ekki von á neinum skemmtilegheitum á sviðinu annað kvöld.

5. Finnland rokkar aftur. Hún Hanna er alveg með þetta...gott lag, flottur texti og verður örugglega flott á sviði. Hlakka til að sjá atriðið hennar Hönnu og tryllinginn sem verður í höllinni. Finnar verða klárlega ofarlega enda magnað lag. Held með HönnuBrosandi

6. Makedónía komst áfram úr undanúrslitunum eins og ég spáði. Lagið svipað og á fimmtudaginn býst ég við og mikið var ég ánægð þegar hún kryddaði lagið með enskum texta í lokin. Gæti endað ofarlega og eins og fyrr er þetta spurning um stutta pilsið og löngu legginaBrosandi

7. Slóvenía með sjálflýsandi lófann....hvað var það?? Er ekkert hrifin af þessu lagi og fannst sjóvið ekki gott, var þó himinlifandi með að sjá ekkert klám á sviðinu og vona að það verði ekki heldur á morgun. Sjálflýsandi lófi...ja hérna það sem fólki dettur í hug! Vona að lagið lendi ekki ofarlega því ég meika ekki ef að ópera verður trendið næsta ár...ljótt yrði það.

8. Ungverjaland komst áfram með versta propps júrovisjon sögunnar. Strætóskilti og ferðatösku...og þeim var fúlasta alvara! Flott söngkona en fílaði þetta ekkert brjálæðislega mikið enda var lagið ekki á mínum lista. Gætu endað ofarlega en gætu líka fengið fá stig...ekki gott að segja.

9. Litháen býður upp á leiðindi. Voðalega dautt lag og ég geri ráð fyrir að söngkonan sitji í barstól og glamri á gítarinn orðin sín “love me or leave”. Höfðar ekki neitt til mín og líklega fárra. Þetta lag kemur til með að gleymast algjörlega.

10. Grikkland með óðinn um Mariu. Þetta lag hefur verið í spilun á fm957 og spá spekingarnir þar því mikilli “tornero-velgengni”. Leyfi mér að efast um það! Þetta er ágætlega grípandi lag en það er eitthvað slísí við það. Textinn er týpískur um drottningu sem allir vilja en enginn fær og síst sá sem syngur...en bíðiði hæg. Í miðju lagi komumst við að því að sá sem syngur á þessa drottningu og það finnst mér gera þetta lag svona slepjulegt. Uppáhaldslínan í þessu lagi er sem sagt ...”probably should mention she´s mine”!!! Þykir þetta voðalegt en er samt viss um að lagið endar ofarlega...vonandi enginn winner samt.

11. Georgía. Ætla að hafa fá orð um það lag...þykir það ekkert skemmtilegra en á fimmtudaginn.

12. Svíþjóð býður upp á hljómsveit sem er vinsæl í Skandinavíu allavega. Var ekki hrifin af þessu lagi fyrst en það “kind of grows on you” svo það sleppur alveg núna. Hef bara einhverja hluta vegna aldrei verið neitt voðalega sænsk þegar kemur að Júrovisjon. Hlakka samt til að sjá sjóvið þeirra...gæti orðið magnað og þeir enda ofarlegaBrosandi

13. Frakkland er næst á svið með skemmtilegt lag. Mér þótti það reyndar skelfilegt fyrst en það er löngu liðin tíð. Það er einhver fílingur í því sem nær mér og ég er viss um að þeir endi ofarlega strákarnir frönsku.

14. Lettland kemur úr undanúrslitunum. Spáði því áfram en það var ekki af því að mér fannst það svo skemmtilegt heldur var ég bara viss um að ég þeir færu áfram. Viðlagið er reyndar fínt en restin ekki svo.

15. Rússland sendir sína Sugababes sveit. Þetta lag náði mér strax og textinn er magnaður. Samt pínu klúr en ég hef bara gaman að því og eflaust fleiri. Er handviss um að þessar 3 bráðhuggulegu rússnesku stelpur eiga eftir að ná langt í keppninni. Aðalið þeirra er með frekjuskarð sem mér finnst töff og ef ég væri 12 ára að horfa er ég viss um að ég hefði ákveðið að halda mínu þrátt fyrir að símaskráin hefði komist á milliBrosandi Ég held með Rússum...

16. Þýskaland og Roger Cicero sem syngur um að konur stjórni heiminum. Hann er algjör sjarmör þessi strákur og syngur fallega en þó á þýsku sem kveikir ekki sérstaklega í mér. Fínasta lag og þrátt fyrir þýskuna syngur hann eiginlega voða mikið beint í hjartað á manni. Annað hvort endar hann ofarlega eða fær bara nokkur stig er viss um að það verður ekkert þarna á milli...

17. Serbía verður vonandi sigurvegari Júrovisjon 2007. Stórkostlegt lag, stórkostleg söngkona og það sem meira er þá náði lagið manni jafnvel betur á sviðinu en í myndbandinu. Ég er kolfallin fyrir þessu lagi og það er á repeat...er meira að segja næstum því farin að kunna textann. Á eiginlega ekki nógu sterk orð til að lýsa þessari dásemd. Held mest með Mariu Serefovic og laginu MolitvaBrosandi

18. Úkraína býður örugglega upp á magnað atriði. Mér fannst lagið snilld fyrst, með eindæmum djúpur texti og ég komst í gírinn þegar það hljómaði. En núna hins vegar er ég komin með ógeð og þetta hljómar eins og Karíus og Baktus í mínum eyrum. Þetta lag gæti mögulega sigrað keppnina en ég vara ykkur við því fljótlega verða þeir bræður komnir í hausinn á ykkur og það eru eins og verstu timburmenn og tannpína veraldarsögunnar.

19. Almáttugur Bretland er með svo vont lag. Það meiðir mig, hallærið gerist ekki mikið meira en þetta. Versta lag keppninnar í ár og ég sem hélt að barnaskólarappið frá þeim í fyrra hefði verið slæmt...þetta er viðbjóður, VIÐBJÓÐUR!

20. Rúmenía veldur mér vonbrigðum í ár. Lagið reyndar venst og á ég uppáhaldssetningu “everywhere you go, my baby, even Italy” sem ég brosi yfir en lengra nær nú gleðin ekki í mínu hjarta allavegal...Æi þetta er eiginlega bara pínu kjánalegt lag sem gæti samt á einhvern ótrúlegan hátt endað ofarlega.

21. Búlgaría er næst á svið. Þau voru ekki góð á fimmtudag þrátt fyrir von mína um að þau myndu bjóða upp á besta atriði kvöldsins. Hún var fölsk og þetta einhvern veginn var ekki gott...þó nóg til að koma þeim í úrslit. Á ekki von á neinni flugeldasýningu á morgun...finnst það bömmer enda sé ég gríðarmikla möguleika á flottu atriði. Er greinilega langt á undan þeim vinum mínum í Búlgaríu hvað það varðarBrosandi

22. Tyrkland komst sem betur fer áfram því ég fékk það hlutverk að halda með þeim í partýinu á morgun. Ef ekki þeim þá Bretlandi og það hefði verið ljóttGlottandi “she said in a sexy, lazy, low key” er klárlega mín uppáhaldssetning og hef ég trú á að lagið endi ofarlegaBrosandi Sem stuðningsmaður lagsins í partýinu þarf ég að mæta með props sem er tilbúið og slær klárlega í gegn...segi frá því síðarHlæjandi Ég held eiginlega pínu með þeim í alvörunni líka..

23. Armenía er með svo leiðinlegt lag að ég nenni ekki einu sinni að hafa um það fleiri orð.

24. Moldavía komst áfram...sjúkket því ég hélt með því. Fannst byrjunin á fimmtudaginn reyndar ekki góð en hún vann á hún Natalia og ég er viss um að hún brillerar á morgun.

Ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að spá...topp 8 kannski bara. Serbía, Finnland, Rússland, Svíþjóð, Grikkland, Hvíta-Rússland, Tyrkland og Úkraína.

Þá er þetta komið...jiminn ég er orðin svo spenntHlæjandi


Skemmtiði ykkur vel á morgun, munið að kjósa og kjósa rétt...fellum ríkisstjórnina!!!

Kveð í bili...

 

12. maí 2007 klukkan 01:04
Arnrún Sveinsdóttir
5 athugasemdir
10maí

Þá er það off...

Ekki komumst við áfram í þetta skiptið...kom mér ekkert á óvart svo sem. Fannst atriðið okkar flott og eiginlega framar vonum því ég bjóst ekki við neinu. Hafði engan húmor fyrir gítar kvartettnum og þeirri hugmynd að þeir ættu heiminn...fannst það bara ekki neitt töff. En í heildina bara allt í lagi og betra en mörg önnur atriði.

Ég var með 6 rétt af 10 og þykir það gott...það sama og spekingarnir norrænu sem fá borgað fyrir að spá. Ég kannski heimta greiðslu á næsta áriBrosandi

Vonbrigði kvöldsins var klárlega Kýpur...ég sem hélt að það væri winner og það hljómaði þannig í vikunni en sjóvið í kvöld var bara ekki gott. Mín spá um besta atriði kvöldsins var svo langt frá því að rætast þar sem Búlgaría gerði ekki eins góða hluti og lagið bauð upp á svo mér fannst merkilegt að það hafi komist áfram. Ó Slóvenía með klámóperuna var ekki eins hræðilegt og ég bjó mig undir en gott var það ekki þó hún hafi ekki verið í neinu klámi kellingin sú með sjálflýsandi lófann. Er sjálflýsandi ekki bara eitthvað sem er töff um verslunarmannahelgi? Vitlausir þessir Slóvenar.

En atriði kvöldsins var klárlega stjúpsonur okkar Oddamæðra hann Stevan Faddy. Við fengum gæsahúð og vorum gríðarlega stoltar af stráknum...örugglega ekki síður en mamma hans í MontenegroGlottandi Lagið var í kjánauppáhaldi en það breyttist í kvöld og er í uppáhaldi...Að keppni lokinni blöstuðum við piltinn og reyndum hvað við gátum að fylgja textanum og syngja með...furðulegt hvað það tókst vel svo ég hlakka til laugardagskvöldsins eftir nokkar æfingar Oddatríósins...það verður þönder kratsí in patskotsíGlottandi

Umfjöllun um úrslitalögin kemur á morgun...nokkur góð og nokkur hrikalega slök. Ætla ekkert að bíða með það til morguns að greina frá því að Bretland toppar ógeðið ár eftir ár. Ég sem hélt að “barnaklámskólarappið” í fyrra hefði toppað skalann...ó men hvað mér skjátlaðist því lagið í ár er hreinn og klár viðbjóður. Sjónmengun, hljóðmengun...hreint og klárt umhverfisslys!!

Þangað til næst...

10. maí 2007 klukkan 23:32
Arnrún Sveinsdóttir
3 athugasemdir
08maí

Fyrsti og annar í júrovisjon umfjöllun

Í próftíðinni hefur júrovisjon verið blastað reglulega, mikið spjallað og spekúlerað, spáð og sungiðBrosandi Topp 10 listi fyrir undankeppnina er klár en ætla samt að taka sviðsröðina á þetta og taka öll lögin fyrir.

1. Búlgaría syngur óð til vatnsins. Með ólíkindum djúpur texti eins og þessi setning ber glögglega með sér " Tara-du-day du-dara dara-du-da (Hey)" en það er bara gaman að því. Ég hef trú á að Búlgaría bjóði upp á flottasta atriði kvöldsins með fullt af trommum, tralli og vatni. Það er eitthvað við þetta lag sem gleður migBrosandi ...efast um að við fáum að sjá sjóvið tvisvar!

2. Ísrael syngur um að ýta á takkann. Þetta lag er skelfilegt! Textinn fjallar um hryðjuverk og hvað þeir þjást þarna í gyðingaríkinu vegna þeirra. Mér hreinlega býður við þessu lagi og næstum því vona að þeir detti á sviðinu...hef engan húmor þeim þeim félögum í teapacks. Pissupása!

3. Frá Kýpur kemur Evridiki og þetta er í 3. skipti sem hún flytur lag í júrovisjon. Allt er þegar þrennt er og ég hef fulla trú á því að Júrovisjon 2008 verði í Lefkosia á Kýpur. Mikið partýlag sem gæti að öllum líkindum náð mér út á gólfið...svo eru leðurbuxur líka klárlega máliðGlottandi

4. Koldun frá Hvíta-Rússlandi syngur Work your magic. Klárlega einhver besti júrovisjon texti fyrr og síðar, djúpur með eindæmum og inniheldur skemmtilegar myndlíkingar. Efast um að hann Koldun viti um hvað hann syngur enda upptekinn af því að vera sætur og líkur Díönu prinsessu...Hef af því stórar áhyggjur að ekkert heyrist í honum elskulegum á sviðinu þar sem hann er of upptekinn við að flagga geimsins hvítustu tönnum. Lærufélagi minn hafði orð á því að tennurnar væru líklega úr einni rannsóknarstofunni í Minsk...það þykir mér ekki ólíklegtBrosandi Hann gerir þetta ágætlega strákurinn en það verður fljótlega þreytt svo tvö skipti á sviði verður nóg...hann kemst áfram en þar sem enginn vill fara til Minsk er þetta enginn winner.

5. Eiríkur Hauks mætir fimmti á svið, á eftir 2 lögum sem fara klárlega áfram. Hvort að það er gott eða vont skal ég ekki segja. Fjöldi austantjaldslanda gefur okkur ágætis möguleika enda skilja þeir enskuna síður en við hérna vestan við tjald...ó men hvað mér þykir þessi texti vondur!! Lagið er ekki endilega eitt af 10 bestu en er á listanum mínum engu að síður en býst ekki við neinni flugeldasýningu svo sem...

6. Georgía býður upp á sérdeilis fína pissupásu. Þetta lag gerir mig pirraða og voða fátt annað um það að segja nema þá helst að fagna því að þurfa bara að hlusta á það einu sinni. Kannski hægt að fagna því líka að lagið er nr. 6 í röðinni, bjórinn verður búinn og blaðran að springa svo maður missir ekki af neinu þegar þessum erindum verður sinnt.

7. Það er gott að fólk verði mætt í sófann þegar Stevan Faddy frá Svartfjallalandi heiðrar samkomuna. Með eindæmum leiðinlegt lag við fyrstu hlustun en nú gleður það mig óendanlega mikið og ég syng hástöfum með...krotsí in paskotsí...það er svo sannarlega einhver rómans við hann FaddyGlottandi Það er líka skemmtilegt frá því að segja að ég er ekki ein um að finnast Faddy vera með´etta svo ég hvet ykkur til að hlusta á hann...hann hittir ykkur örugglega beint í hjartastað. Hversu mikill eðall er krotsí in paskotsí?? Ég er ekki enn orðin nógu sleip í montenegró-ískunni en enski textinn segir mér að þessi eðal lína þýði "you will be my lover". Svo er Faddy líka með Dressmann grátt hárBrosandi Faddy er mitt wild card...

8. DJ Bobo frá Sviss er með ólíkindum ófríður maður, hann syngur um að vampírur séu lifandi. Hann er líklegast nærtækasta dæmið...já ég lýg ef ég segi að hann hafi útlitið með sér. Mér þykir lagið leiðinlegt en sjóvið gæti orðið flott svo hann gæti vel farið í úrslit. Hann er samt ekki á mínum lista...hver kýs mann sem heitir DJ Bobo og er ljótur í þokkabót?? Held að hann fari áfram en geri engar rósir þann 12. maí.

9. Moldavía með lagið Fight er eitt af mínum uppáhalds. Mér þykir lagið magnað, fiðla, trommur og almenn skemmtilegheit. Þetta lag er á mínum lista og kemst örugglega áfram í úrslitin. Ég hef líka trú á að Moldóvar bjóði upp á skemmtilegt sjóv...er öll spennt fyrir hönd vinkonu minnar Nataliu Barbu og óska henni alls hins bestaBrosandi

10. Holland ruglast agalega og heldur að Toni Braxton sé enn inn. Það er hún svo sannarlega ekki ef hún var það þá einhvern tíman. Dautt lag og því upplagt að drekka meira, sækja meiri bjór, fara á klósett eða út að reykja því næsta lag er engu skárra...

11. Albanía...er það grín? Miðaldra gaur með skelfilegt hár syngur “hear my plea”...vona að hann fatti að endurskoða hárið, jakkafötin og skrautið um hálsinn þá er möguleiki á að eitthvað gangi hjá honum. Vont lag!

12. Danmörk, Danmörk, Danmörk. Ekki er það sagan um Johnny og Connie og plottið þegar Johnny kemur og breikar við lagið Twist of love heldur Dramaqueen sungið af Dragqueen. Það er líka fínasta plott, mikið gleðilag sem veitir mér yl í hjarta og vekur upp danssellurnar sem þó eru svo oft í felum. Svo er ég vitlaus í drama, drag og drottningar svo hvað gæti svo sem klikkað? Danmörk er klárt áfram enda engin úrslit án þeirra...

13. Króatía. Held að það sé ekkert grín þó það væri svo í fullkomnum heimi. Vont lag, enn einn miðaldra kallinn með dauðasta hár á höfði sem ég hef augum litið. Stærsta kona Króatíu spókar sig um á sviðinu og blessaður maðurinn nær henni ekki nema rétt upp undir handarkrika. Króatíska kombóið kemst ekki nema rétt upp á sviðið og út af því aftur...ekki annað hægt en að halda áfram að hella í sig.

14. Pólland er næst á svið með lagið time to party sem það er svo sannarlega. Pólverjar ná langt enda hafa þeir komið sér vel fyrir í flestum löndum Evrópu og kjósa sína þjóð stíft. Black eyed pease Evrópu bjóða í partý og 17 ára gellu sem dansar eins og 17 ára ætti kannski ekki að gera en hún er alveg með´etta stelpan. Klárt í úrslitin og partýið rétt að byrja.

15. Serbía sendir eitthvað í bleikum Ramones bol til Helsinki þetta árið. Flottur söngur og stór plús fyrir að syngja á móðurmálinu. Flýgur inn í úrslit og verður það lag á toppnum sem er sungið á móðurmáli...2. eða 3. sæti er það heillin fyrir Serbíu. Ég spái að bolurinn verði blár á fimmtudaginn...

16. Tékkland verður þess vafasama heiðurs aðnjótandi að eiga versta lagið í undanúrslitunum þetta árið og annað versta lag keppninnar. Svo vont lag að það meiðir. Best að ég taki úr vélinni hreinlega...

17. Portúgal með sína Nelly Furtado...sláandi lík henni svona stundum allavega. Leiðinlegt lag sem sætar dansandi stelpur geta engan veginn bætt upp...Ég hendi þvottinum á snúruna líka bara.

18. Hin yndisfagra og leggjalanga Karolina syngur Mojot Svet eða Sweet Mojo if you willBrosandi Karolina kemur frá Makedóníu og það eru engar ýkjur að segja að lappirnar á henni gætu verið úr sömu rannsóknarstofu og tennurnar hans Koldun. Flýgur inn í úrslit og því styttra pils því fleiri stig.

19. Noregur...æi. Ekki sterkur leik hjá frændum okkar þetta árið....virkilega slakur bara. Guri er með fallegar lappir það verður ekki tekið af henni en lagið er vont og hún er ekkert spes heldur. Guri fær bara að sýna á sér lappirnar einu sinni sem er svo sem yfirdrifið því lagið er bara ekkert til að hlusta á oftar.

20. Malta sendir Oliviu til að syngja Vertigo. Lag sem venst virkilega vel en myndbandið var vont. Gæti komist í úrslit en er ekki á mínum lista þó. Ekkert meira um það að segja held ég bara...

21. Andorra með amerískt háskólarokk sem gæti virkað en gæti líka floppað feitt. Strákarnir syngja um að gera heiminn betri sem fer að verða þreytt. Hressir, litlir og sætir strákar sem eiga eitt besta framlag Andorra hingað til. Gaman að segja frá því að ég hef komið þangað og þar er hægt að prútta mikið enda flest allt þýfi gæti ég trúað....lagið er líka á mörkunum að vera þýfi.

22. Ungverjaland með tregaballöðu sem mér finnst leiðinleg. Norðurlandaspekingarnir gáfu laginu næst flest stig en það kemst ekki á minn lista. Það býður ekki upp á neina skemmtun á sviði svo ég efast um að lagið fari í úrslitin.

23. Eistland og Gerli Padar. Eistar segja að hún sé Pink Eistlands en í almáttugs bænum...hana skortir allt nema það að gera sungið sæmilega. Partners in crime heitir lagið sem er náttúrulega gríðarlega mikið turnoff. Vona að hún taki ekki sexy dans því hún getur það ekki...eiginlega vandræðalega ósexy þessi stelpa. Kemst klárlega ekki í úrslit.

24. Belgískur Mika er næstur á svið. Ég hef engan húmor fyrir þessu atriði, útvíðar buxur og risastór gleraugu. Kveikir ekki í mér á nokkurn hátt og ég vona að meðlimir fari heim með sömu flugvél og nágranni þeirra Toni Braxton.

25. Slóvenía...haldiði ykkur. Popp-ópera er ekki fyrir mig og klámópera þaðan af síður. Myndbandið er hrikalegt...hún að velta sér um i rúminu með einhverjum unglingspilti, ekki minn tebolli. Ég kvíði þessu atriði gríðarlega því ef að erótíkin ræður ríkjum slekk ég á sjónvarpinu. Hversu hrikalegt yrði það?? Er smeyk við þetta atriði....æ mig auma.

26. Tyrkland er næst með Justin Timberlake. Shake it up shekerim er samt partýlag sem er kárt í úrslitin. Held að sjóvið verði magnað og margir rassar verði hrisstir. I´ve got lots of candy for you segir hann þessi elska og ég held að það virki.

27. Austurríki reynir á ógeðslega slepjulegan hátt að safna stigum...kemst á stall með framsóknarflokknum í þeim efnum. Júrovisjon er ekki staður til að berjast gegn HIV þó það þurfi klárlega að gera það. Fyrir utan þetta þá finnst mér lagið slakt...gerist ekkert í því en söngvarinn er allt í lagi og býsna huggulegur í þokkabót. Austurríki fær ekki stig út á alnæmið og kemst ekki í úrslit.

28. Lettland með síðasta lag kvöldsins. Annað lagið í óperustíl og sungið á ítölsku. Þykir það vont en á svipaðan hátt og hann Steven Faddy vinur minn þá fer hallærishátturinn allan hringinn. Ég hef ágætis húmor fyrir þessu lagi og held að það komist áfram...aðallega þó vegna þess hve nágranni þeirra Gerli Padar frá Eistlandi er vond.

Topp 10 listinn minn lítur því svona út:

Kýpur, Moldavía, Makedónía, Ísland, Pólland, Serbía, Tyrkland, Hvíta-Rússland, Danmörk, Lettland


Segi þetta gott í bili og bið ykkur vel að lifaBrosandi
08. maí 2007 klukkan 01:04
Arnrún Sveinsdóttir
7 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur